Sumarið hjá YGG og Enviance

—— 16.10.2024

Sumarið hjá YGG var afkastamikið að venju. Gróðursett var á sjö jörðum á Austurlandi, Norðurlandi og Vesturlandi auk þess sem undirbúningur hófst á þeirri áttundu. Samtals fóru niður um 900.000 plöntur; fura, greni, ösp, lerki og birki og munu þau tré binda um 162.000 tonn af koltvísýringsígildum á næstu 50 árum.

Að auki er hafin vottun á þrettán verkefnum YGG. Vottunarstofan Enviance í samstarfi við iCert sjá um vottun og er áætlað að vottun á u.þ.b. helmingi verkefna ljúki á þessu ári. Enviance er með höfuðstöðvar á Indlandi og hefur á sínum snærum teymi sérfræðinga um allan heim sem margir hverjir hafa áratuga reynslu í staðfestingu og sannprófun loftslagsverkefna.

Vottun er afar mikilvægur þáttur til að tryggja raunávinning verkefna fyrir loftslagið. Gera þarf grein fyrir stjórn verkefna, eignarhaldi lands, tryggja að farið sé eftir lögum og reglugerðum og að verkefni samræmist opinberri skógræktarstefnu. Eins þarf að gera grein fyrir grunnstöðu kolefnisforða svæðisins, kolefnisleka, umhverfisáhrifum og samfélagslegri ábyrgð.

YGG fagnar aðkomu Enviance og hlakkar til samstarfsins.